2ja herbergja íbúð

Kjarnagata 51 - íbúð 0404

Um eignina

 

Kjarnagata 51 - íbúð 0404            

2ja herbergja íbúð á 4. hæð          

Birt flatarmál íbúðar:      60,7m2 

Þar af sérgeymsla í kjallara:         4,8m2   

Íbúðinni fylgir stæði í bílageymslu                  

Áætlaður afhendingartími íbúðar er okt/nóv 2020

 

4ra hæða fjölbýlishús með lyftu, alls 40 íbúðir

 

Hönnun hússins er unnin af Haraldi Árnasyni hjá TGT HÚS ehf.

Húsið er byggt á einni af fimm lóðum sem SS Byggir ehf hefur til umráða á byggingarreit sem afmarkast af Kristjánshaga, Elísabetarhaga, Kjarnagötu og Davíðshaga. 30 íbúðum fylgja stæði í bílageymslu á baklóð en bílageymslan er sameiginleg með Davíðshaga 2 og Davíðshaga 4.

 

Frágangur innanhúss

Veggir íbúða: Allir útveggir íbúða eru sandspartlaðir og málaðir.

Veggir og loft í kjallara: yfirborð veggja og lofta í kjallara er málað en ekki heilspartlað.

Loft: Loft alrýma og svefnherbergja íbúða eru klædd hljóðdempuðum loftaplötum. Önnur loft íbúða og sameignar eru sandspörtluð og máluð.

Gólf:  Ofan á forsteyptar filigranplötur koma ísteyptar lagnir (þ.m.t. loftræsilagnir), gólfhiti og járnabinding áður en ásteypulag er steypt.  Gólfefni íbúða er rakahelt og hljóðdempandi vinylparket. Gólf stigauppgöngu er steinsteypt og flísalagt. Gólf í sameign og geymslum í kjallara er steinsteypt og lakkað.

Pípulögn: Hitalagnir eru í gólfum íbúða. Neysluvatnslagnir eru lagðar skv. verkfræðiteikningum.

Raflögn: Raflögn er fullfrágengin, ljósakúplar eru á baði/þvottahúsi. Önnur ljós fylgja ekki innan íbúðar. Útiljós við innganga verða frágengin. Uppsettur reykskynjari fylgir hverri íbúð. Mynddyrasími er í hverri íbúð.

Baðherbergi: Flísar eru veggjum og á gólfi í sturtum baðherbergja. Aðrir veggfletir baðherbergja eru málaðir. Á baðherbergi er innrétting með handlaug en einnig innrétting fyrir þvottavél og þurrkara.

Innréttingar og skápar: Yfirborð allra innréttinga er úr harðplasti ýmist með viðaráferð eða hvítt. Innréttingar eru í eldhúsi og á baðherbergi. Skápar koma þar sem teikningar sýna. Harðplast er á borðplötum. Með eldhúsinnréttingu fylgir bakaraofn, keramik helluborð og vifta. Gert er ráð fyrir plássi fyrir uppþvottavél í innréttingum íbúða nema í stúdíó-íbúðum.

Hurðir: Yfirborð innihurða er úr harðplasti með viðaráferð.

 

Póstkassar: Póstkassar eru utanhúss fyrir allar ibúðir og koma á vegg framan við aðalinngang.

 

Hreinlætistæki: Öll blöndunartæki eru af viðurkenndri gerð og koma þar sem teikningar sýna.

 

Frágangur utanhúss

Útveggir: Allir útveggir hússins eru einangraðir að utan með 100mm harðpressaðri steinull. Húsið er klætt að utan með báruðu stáli og smábáru úr áli.

Gluggar og hurðir: Allir gluggar eru timbur-álgluggar. Gluggarnir eru smíðaðir úr furu en að utanverðu eru þeir klæddir áli.  Timburhurðir eru í húsinu en svalahurðir eru rennanlegar úr áli. Tvöfalt verksmiðjugler frá viðurkenndum framleiðanda verður í húsinu og flyst ábyrgð þess áfram til kaupenda.

Þak: Steypt loftaplata er fulleinangruð undir þakdúk og hulin með möl

Svalir: Svalagólf er steypt. Handrið er gert úr stálprófílum. Prófílarnir eru klæddir alucobond-klæðningu. Hönnun handriðs og svala er með þeim hætti að auðvelt er að koma fyrir svalalokun í framtíðinni. M.a. er steypt þak yfir efstu svölum. 

Lóð: Stéttir við aðalinngang eru með hitalögnum að hluta skv. teikningu. Lóð er þökulögð í samræmi við fyrirliggjandi lóðarteikningar og bílaplön malbikuð. Engar girðingar fylgja og enginn annar gróður en að ofan greinir fylgir eigninni.

 

Loftræsing: Sérstakur vélrænn loftskiptibúnaður er í hverri íbúð þar sem ferskt loft er hitað upp með útkastslofti. Rekstrakostnaður íbúða lækkar og einnig minnkar ryk innan íbúðar verulega með tilkomu þessa kerfis og heilnæmi andrúmslofts íbúðar eykst.

 

Eldvarnir: Hver íbúð er sjálfstætt brunahólf. Reykskynjari og handslökkvitæki verður sett upp í hverri íbúð. Í húsinu er brunaeftirlitskerfi.

 

SS reiturinn í Hagahverfi

SS Byggir ehf á fimm lóðir á reit sínum í Hagahverfi. SS Byggir ehf mun byggja fimm fjölbýlishús sem standa þannig á reitnum að skjólgóð baklóð myndast. SS Byggir ehf mun byggja upp sameiginlegt leiksvæði með litlum sparkvelli í yfirbyggðu leikjahúsi á baklóðinni. Sameiginleg baklóð á þaki bilakjallara verður að mestu þakin gervigrasi. Einnig munu göngustígar framan húsanna verða búnir snjóbræðslukerfi og tengist sameiginlega svæðinu á baklóðunum.

 

 Loftskiptikerfi – nýjung á markaði!

  • Sjálfstætt loftskiptikerfi er í öllum íbúðum.
  • Loftskiptikerfið hitar ferskt loft með varma loftsins sem kerfið dregur út úr íbúðunum.
  • Tryggir jöfn og góð loftskipti allt árið um kring, óháð veðri og vindum.
  • Bætir gæði og heilbrigði lofts íbúða.
  • Minnkar ryk.
  • Lækkar rekstrarkostnað.

 

 Hljóðplötur í loftum íbúða

  • Gefa góða hljóðvist innan íbúðar.
  • Draga úr hljóðmengun á milli hæða.
  • Minnka áhrif geislahitunnar úr loftplötu.

 

Hljóðdempandi vínilparket er á gólfum íbúða

  • Slitsterkt og endingargott.
  • Hljóðdempandi.
  • Vatnsþolið.

 

Sérsmíðaðar TAK-innréttingar og TAK-innihurðir eru í öllum íbúðum

  • Brautir og lamir eru með ljúflokun.
  • Yfirborð hliða og hurða er úr slitsterku viðarlíki.
  • Sama efni er í innréttingum og innihurðum.

 Brunaviðvörunarkerfi í öllu húsinu

  • Kerfið er samtengt á milli allra íbúða og sameignar og tengt stjórnstöð.

 

Geymslur í kjallara

  • Sérgeymsla í kjallara fylgir öllum íbúðum.
  • Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í kjallara.

 

Svalahandrið hannað með svalalokun í huga

  • Frágangur á svalahandriði og yfirbyggingu á einkasvölum íbúða gerir ráð fyrir að hægt sé að setja upp svalalokunarkerfi án mikils tilkostnaðar.

 

Húsið er einangrað að utan og klætt með viðhaldslitlum klæðningum

 

Ál-tré gluggar eru í húsinu

  • Ál-tré gluggar eru smíðaðir úr tré (furu) en klæddir álkápu að utanverðu til þess að minnka þörf á viðhaldi og auka endingu.

 

Snjóbræðslukerfi

Snjóbræðslukerfi er lagt í stétt heim að húsinu, í bílastæði ætlað fyrir hreyfihamlaða og í gangstétt meðfram húsinu að framanverðu.

Snjóbræðslukerfi mun koma í stéttir fyrir framan öll húsin á lóðinni og því kemur u.þ.b. 500 metra löng stétt með snjóbræðslukerfi hringinn í kringum húsin á lóðinni.

 

Yfirbyggt leikskýli fyrir leiktæki og sparkvöll verður á sameiginlegri baklóð

 

 Handbók fylgir öllum íbúðum

  • Íbúðum SS Byggir ehf í Hagahverfi fylgir handbók með helstu upplýsingum um byggingavörur sem notaðar voru við byggingu hússins ásamt upplýsingum um undirverktaka og hvert leita beri eftir þjónustu þegar fram líða stundir.

 

Kjarnagata 51 - íbúð 0404

61fm2

Fylgihlutir

Sérgeymsla í kjallara fylgir. Stæði í bílageymslu fylgir. Svalahandrið eru hönnuð með svalalokun í huga. Húsið er einangrað að utan. Ál-tré gluggar eru í húsinu – húsið er klætt að utan með viðhaldslitlum klæðningum. Snjóbræðslukerfi er lagt í gangstétt framan við öll húsin á byggingareitnum. Yfirbyggt leikskýli fyrir leiktæki og sparkvöll verður á sameiginlegri baklóð húsanna fimm á byggingareitnum. Ítarleg handbók fylgir íbúð.

  • Nýbygging
  • Bílakjallari
  • Svalir
  • Geymsla
Skoða teikningu

Loftskiptikerfi – nýjung á markaði. Sjálfstætt loftskiptikerfi er í íbúðinni. Mikið er lagt upp úr góðri hljóðvist íbúða. Hljóðplötur í loftum íbúða og hljóðdempandi vínil-parket er á gólfum íbúða.